Um Íslenska blómadropa Kristbjargar
Íslenskir blómadropar Kristbjargar hafa að geyma innsta eðli ferskrar og óspilltrar náttúru landsins. Þeir eru framleiddir úr tæru, íslensku vatni hlöðnu tíðni villtra, íslenskra jurta. Jurtirnar eru einungis tíndar fjarri mannabyggð og allri umferð, þar sem þær eru ósnortnar, hreinar og í sínum fulla krafti. Blómadroparnir innihalda íslenskt vatn og tíðni eða útgeislun plantnanna. Segja má að útgeislun þeirra sé áran eða lífskrafturinn þeirra en sérhver planta hefur sína sérstöku tíðni og útgeislunarorku (á ensku kallast blómadropar Vibrational Medicine).

Það er þessi lífs- eða tíðniorka plantnanna sem við sækjumst eftir, því að hún getur fært okkur orku þegar okkur vantar hana. Við nýtum útgeislun plöntunnar, ekki efnislega hluta hennar. Þar af leiðandi er þeim, sem hafa ofnæmi fyrir einstaka jurtum, óhætt að nota blómadropana. Ekkert efnislegt frá plöntunni er í dropunum. Við  framleiðsluna er lífrænt ræktuðu koníaki bætt út í dropana til að varðveita gæði þeirra.  Þeim, sem hafa ofnæmi fyrir áfengi, er rálagt að nota blómadropana útþynnta í vatni í stað þess að setja þá beint og óblandaða undir tungu. Í raun er ekki nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíknina en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og setja dropana í vatn og drekka, frekar en beint undir tungu.  Það skal einnig tekið fram að blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.

Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um blómadropana þá geturðu sent póst á Kristbjörgu á netfangið blomadropar@kristbjorg.is.

Helstu útsölustaðir á blómadropum og jóga-geisladiskum frá Kristbjörgu:

  • Heilsuhúsið, Kringlunni, Smáranum, Skólavörðustíg
  • Yggdrasill, Kárastíg 1
  • Betra Líf, Kringlunni
  • Góð Heilsa Gulli Betri, Njálsgötu 1
  • Heilsuhornið, Akureyri
  • natturan.is