44 Íslenskir Blómadropar Kristbjargar

Hægt er að pannta einstaka blómadropa með tölvupósti á kristbjorg@kristbjorg.is. Vinsamlegast setjið með símanúmer til að hringja í. 10 ml flaska kostar 850 kr, 30 ml flaska kostar 1.700 kr. Allt settið kostar 10 ml 31.500 kr, 30 ml sett kostar 63.000 kr.

1. Álmur Gefur: Trú og traust á sjálfan sig og lífið. Losar: Vanmáttakend, tilhneigingu til þunglyndis.

2. Beitilyng Gefur: Innri styrk, gleði og sætti. Losar: Einmannakennd og sjálfsvorkun.

3. Birki Gefur: Aukinn skilning á tilgangi lífins. Kemur manni í núið. Losar: Þröngsýni, gömul hugform.

4. Bláberjalyng Gefur: Eldmóð og kraft til að byggja upp eigið líf. Losar: Sjálfsfyrirlitningu.

5. Blágresi Gerfur: Sætti. Að standa í miðjunni sinni. Losar: Ótta við höfnun. Sjálfshöfnun.

6. Blákollur Gefur: Græðir gömul tilfinninga sár. Dropar sem gott er að nota á föstu. Losar: Uppgjafatilfinningu, vonleysi.

7. Bláklukka Gefur: Trú og tilfinningu fyrir velgengni, sjálfstrausti og jafnvægi. Losar: Eigingirni. Ótta við að fá ekki það sem manni ber, afbrýðisemi.

8. Blóðberg Gefur: Leik og gleði. Kærleikurinn flæðir inn. Losar: Óttann við að sleppa fordómum og kreddum.

9. Blæösp Gefur: Traust og öryggi. Losar: Ótta eða hræðslu sem á sér jafnvel enga skýringu.

10. Brenninetla Gefur: Jafnvægi á karl og kvennorkuna, á jin/jang. Styrk í miklum breytingum. Losar: Stress, innri spennu og stjórnunaráráttu.

11. Brönugrös blóm Gefur: Fókus í andlega kjarnann. Hvatningu við að fara leiðina heim. Losar: Svartnætti sálarinnar, vonleysi.

12. Burkni Gefur: Bjartsýni, ljós og von. Losar: Þunglyndi, ranghugmyndir, eigingirni sprottna úr ótta.

13. Dúnurt Gefur: Tilfinningatenginu, kjark til að finna til sársauka jafnt og gleði. Losar: Djúpar frosnar tilfinningar. Ofurviðkvæmni, hysteríu, maní/depressivt ástand.

14. Dýragras Gefur: Skilning. Veit hvað maður vill. Losar: Óöryggi og efa um eigin dómgreind, óákveðni.

15. Einir Gefur: Innri kyrrð og sætti. Losar: Áhyggjur af öllu mögulegu.

16. Eyrarrós Gefur: Styrk til að standa með sjálfum sér, opnar skilning á sjálfinu. Losar: Andúð, biturð og fórnarlambstilfinningu.

17. Garðabrúða Gefur: Gleði, lífsgleði, þakklæti, hlátur, tjáningu, húmor. Losar: Stress og spennu. Alvarlegheit, að vera föst í vandamálinu.

18. Geldingahnappur Gefur: Kraft og lífsorku. Opnun milli anda og efnis. Losar: Orkuþurrð, útbrennslu.

19. Gleym mér ei Gefur: Aukið minni, skýrleika í hugsun. Svefn í jafnvægi. Losar: Neikvæðar hugsanir, minnisleysi, martraðir og svefnleysi/svefnvanda.

20. Gulmaðra Gefur: Nýja von, nýjar hugmyndir, nýtt líf. Frelsi frá fortíð. Losar: Sorgar örvæntingu, sálarkvöl, tilfinninguna fyrir að vera komin á ystu nöf.

21. Hjólkróna Gefur: Kjark og gleði, sjálfstraust til að takast á við hættur og áskoranir. Losar: Sorg, þunglyndi, örvæntingu og hjálpar til við að yfirvinna kjarkleysi.

22. Hvannarblóm Gefur: Vernd fyrir neikvæðum áhrifum úr umhverfinu. Sjálfsöryggi og fókus. . Losar: Einbeitingarleysi, undirgefni. Aðgreiningar tilfinningu.

23. Kamilla Gefur: Innri ró, slökun og hlutlausa yfirsýn á kringumstæður, lífið og sjálfan sig. Losar: Óskilgreinda innri spennu sem lýsir sér oft sem óróleiki og magaspenna.

24. Klóelfting Gefur: Kyrran huga, róar taugakerfið. Eykur kyrrð og frið. Losar: Síhugsanir, áhyggjur og spennu.

25. Lerki Gefur: Sjálfsstyrk, sjálfsöryggi og trú á sjálfan sig. Losar: Lélegt sjálfstraust og sjálfsálit oft sprottið úr neikvæðri gagnrýni.

26. Ljónslappi Gefur: Hæfileikann til að sleppa takinu af öllu. Auðmýkt. Losar: Stífni, þrjósku, yfirkeyrðan vilja.

27. Lífsbjörgin Gefur: Flæði á stíflaða orku. Léttir á erfiðum yfirborðstilfinningum. Skyndihjálp. Losar: Sjokk ástand. Einkenni sprottin úr skyndiáföllum og vanlíðan.

28. Maríustakkur Gefur: Opnar fyrir djúpa innri vitund, alheimsvitundina. Hjartaviskuna. Losar: Tómleika hjartans, þröngsýni, einbeytingarleysi, síhugsanir.

29. Melablóm Gefur: Vernd fyrir neikv. hugformum, sálartengingu. Losar: Djúpa sorg og þrá eftir að komast “heim”. Angurværð, ráðleysi og tilgangsleysi.

30. Morgunfrú Gefur: Jarðtengingu. Tilfinningu fyrir raunveruleikanum, fókus. Losar: Draumkennt ástand, athyglisbrest. Góð fyrir börn og unglinga.

31. Mýrarsóley Gefur: Vernd og öryggi. Svefninn verður betri og dýpri. Draumar sterkir. Losar: Skyndileguan ótti og panik. Spennumyndun þegar allt gerist mjög hratt.

32. Rauðsmári Gefur: Jafnvægi og styrkir einbeitingu. Er mjög róandi og slakandi. Losar: Hysteríu, athyglisbrest vegna tilfinninga ójafnvægi.

33. Reyniviður Gefur: Getu til að fyrirgefa sér og öðrum, læra af fortíðinni. Losar: Djúpan bældan sársauka, dómhörku og höfnun. Svartsýni og vonleysi.

34. Sigurskúfur Gefur: Sjálfsstyrk, viljastyrk og kjark. Sigrast á vandanum. Losar: Hroka, kúgun, þörf fyrir valdabaráttu, bælingu.

35. Silfurhnappur Gefur: Mildi og hlýju í hjarta og huga. Skilning. Losar: Sjálfshöfnun, sjálfsfyrirlitningu, sjálfshatur.

36. Skógarfura Gefur: Sjálfsætti og traust á sjálfan sig. Sýn á stóru myndina. Losar: Sektarkennd. Sjálfsásökun og reiði.

37. Smjörlauf Gefur: Jafnvægi á kynorkuna og þörfina fyrir kynlíf. Losar: Erfiðar tilfinningar tengdar kynlífi og kynveruinni í okkur. Kynkulda.

38. Tágamura Gefur: Opnun á innri leiðina. Einlægni, nægjusemi, auðmýkt og sjálfsaga Losar: Fíkn. Hroka sprottin úr lélegu sjálfsmati. Óöryggi, sjálfshöfnun.

39. Túnfífill Gefur: Jarðtengingu. Gefur djúpa slökun í líkamann. Umbreytingarplannta. Losar: Tilfinningahindranir sem sitja í vöðvum. Gott að nudda á spennta vöðva.

40. Undafífill Gefur: Frelsi og sætti. Græðir hjartasárin. Fyrirgefning. Opnar fyrir sjálfs ást. Losar: Sársauka og tómleika úr hjarta. Ástarsorg og höfnunartilfinningu.

41. Vallhumall Gefur: Traust og styrk við mjög erfiðar aðstæður. Losar: Ofurviðkvæmni gagnvart sjálfum sér og umhverfinu. Varnarleysi.

42. Þrenningarfjóla Gefur: Opnar upp og eflir næmni fyrir æðri orku. Opnar milli hjarta og huga. Losar: Þunglyndi, minnisleysi. Kvíða, átta