Virkni

Blómadroparnir hafa áhrif á tilfinningar, huga og sál. Gömul áföll, spenna og streita sitja eftir sem hindranir í líkama, tilfinning- um og huga, draga saman orku okkar og veikja þannig líkamann. Blómadroparnir losa slíkar hindranir sem birtast oft í formi spennu, kvíða, áhyggna og uppsafnaðrar þreytu. Þeir færa okkur orku til að umbreyta erfiðum tilfinningum og hugsanamynstrum í léttleika, frelsi, gleði og kærleika. Þannig opnum við fyrir flæðið frá sálinni, verðum betur meðvituð um hver við raunverulega erum og eigum auðveldara með að lifa í takt við æðri vilja okkar og tilgang í lífinu.

Blómadroparnir geta aldrei haft neikvæð áhrif. Þeir lækna ekki einn þátt verundar okkar á kostnað annars. Ekki er hægt að  velja ranga blöndu, því að ef þú þarft ekki á henni að halda munu droparnir renna beint í gegnum þig án þess að þú finnir fyrir því. Hugsanleg hliðaráhrif blómadropa geta birtst þegar gamlar, fastar orkuhindranir eru að losna. Þá er mögulegt að upplifa tilfinninguna, sem unnið er með, í stuttan tíma rétt á meðan hreinsunin stendur yfir.