Vitund I
Í Vitund I sem samanstendur af 9 blómadropa flöskum,er unnið með
persónuleikann. Tilfinningar og hugsanamynstur eru færð yfir í jafnvægi
og frjálsu flæði komið á í til- finningum, huga, orkulíkömum og
orkustöðvum. Orkustöðvarnar eru utan efnislíkamans, einskonar
orkumiðlunarhjól sem tengja saman alla eðlisþætti okkar og miðla orkunni
á milli þeirra. Hver flaska af blómadropum tengist ákveðinni orkustöð og
losa droparnir úr viðeigandi flösku spennu og hindranir úr orkustöðinni
og koma á jafnvægi innan hennar, í orkubrautunum og þeim líffærum sem
hún tengist. T.d. virka Gleðidroparnir á hjartastöðina, færa henni orku
til að jafna flæðið þar og innan orkubrautanna sem tengjast henni.
Þannig nær-ist hjartað sjálft og lækningarmáttur þess verður virkur. Við
eigum einnig léttara með að sættast við lífið og sjá spaugilegu
hliðarnar á okkur sjálfum og lífinu. Gleði og friður flæða inn. Vitund I
samræmir orkuna á milli hins jarðneska, eteríska, tilfinningalega og huglæga
í verund okkar og vitund.
Notkun
Blómadropa má nota á fjölbreyttan hátt eftir því hvort verið er að fást
við yfirborðstilfinningar, djúpstæðar undirliggjandi tilfinningar eða
makvissa djúpvinnu sem tengist öllum orkustöðvum. Lestu um það hvað hver
blómadropaflaska gerir og þá munt þú sjá hvaða virkni á best við þig
hverju sinni. Til að hafa áhrif á (tilfallandi) yfirborðstilfinningar
hristir þú flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir
tunguna 4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað 2-3
blómadropaflöskur í einu. Gættu þess að láta dropateljarann ekki komast
í snertingu við munninn. Þessi aðferð hefur áhrif á
yfirborðstilfinningar. Einnig er gott að setja blómadropa út í te,
vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt. Í vatnskönnuna á
matarborðið er gott að setja t.d. Gleði og Hlátur til að fá enn
meiri gleði í samverustund fjölskyldunnar.
Djúpvinna
Til að vinna á djúpstæðum undirliggjandi tilfinningum færð þú þér 30ml
flösku með dropateljara, telur 21 dropa í hana úr blómadropaflöskunni, sem þú hefur valið þér, og
fyllir upp með vatni. Hristu vel. Því næst tekur þú inn 7 dropa í
örlitlu af vatni tvisvar til þrisvar á dag uns 30ml flaskan er kláruð.
Þessi aðferð nær að sækja og vinna út áföll frá fyrri tíð sem eru enn að
hafa áhrif á líf þitt án þess að þú verðir þess endilega svo vör/var í
daglega lífinu þínu.
Markviss djúpvinna
Einnig er hægt
að vinna markvisst með Vitundar I kerfið. Þá er byrjað á
Sjálfsöryggisflöskunni (virkar á neðstu orkustöðina), blandað úr henni í
30ml flösku og blandan tekin inn á sama hátt og greint er frá í
djúpvinnunni. Því næst er hver flaskan á fætur annarri notuð þar til þú
hefur klárað allar. Þannig myndar þú jafnvægi í heildarverund þinni og
orkuflæðið verður jafnt og þétt í öllum orkustöðvum og -kerfum. Þessu
næst getur þú snúið þér að Vitund II og III á sama hátt. Sjá nánar um
Vitund II og Vitund III í bæklingi sem fylgir þeim.
Hugleiðsla
Gott er að taka inn 21 dropa úr flösku af eigin vali í örlitlu vatni
fyrir hugleiðslu. Þú gætir t.d. hugleitt á eiginleikana, sem jurtirnar
standa fyrir, eða orkustöðina, sem þeir virka á. Einnig er gott að nudda
3 dropum á orku-stöðina.
Sjálfsöryggi
Þessi blanda styrkir jarðtengingu; veitir aukið sjálfsöryggi,
sjálfstraust, kjark, tilfinningu fyrir velgengni og samkennd með
náttúrunni. Sjálfsöryggi hjálpar okkur að birta í efninu þann
raunveruleika sem okkur dreymir um. Gott að taka inn þegar þér finnst þú
hafa misst fótana, ert óörugg/ur með þig, veist ekki hvað þú vilt, þegar
þú átt erfitt með að taka ákvarðanir og þegar álit annarra skiptir þig
of miklu máli. Er einnig góð við þunglyndi. Kemur á jafnvægi í
rótarstöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Holtasóleyjar (Dryas octopetala), Rauðsmára (Trifolium pratense), Reynis
(Sorbus aucu-paria), Sauðamergs (Loiseleuria procumbens) og Vallhumals (Achillea
millefolium).
Slökun
Þessi blanda hjálpar okkur að sleppa takinu af fortíðinni og því sem
hamlar vexti og þroska. Gömul hugsana- og hegðunarmynstur leysast upp.
Blandan gefur djúpa slökun og hjálpar okkur að njóta andartaksins. Gott
að taka inn þegar þú átt erfitt með að slaka á, njóta og gefa eftir í
hendurnar á Guði. Kemur á jafnvægi í harastöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Baldursbrár (Matricaria maritima), Gráelris (Alnus incana), Gullmuru (Potentilla
crantzii) og Túnfífils (Taraxacum officinale).
Lífsorka
Gefur kraft og lífsorku; eflir sköpunarorkuna og löngunina til að
lifa, vaxa og gera það sem þarf hverju sinni; örvar skapandi hugsun og
tilfinningar; kemur jafnvægi á kynorkuna um leið og innri fullnægja
flæðir um kerfin. Gott að taka inn þegar þú ert þreytt/ur og orkulaus,
þegar framkvæmdaorkan er ónóg, þegar neikvæðar hugsanir fylla hugann
eða þú hefur týnt þér í dagdraumum, lifir í fortíðinni, sérð eftir
hlutum eða finnst þú vera fórnarlamb umhverfisins.
Kemur á jafnvægi í magastöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Geldingahnapps (Armeria maritima), Rifsberjarunna (Ribes rubrum),
Þyrnirósar (Rosa pimpinellifolia) og lífrænt ræktaðrar Morgunfrúar (Calendulla
officinalis).
Vilji og tilgangur
Þessi blanda eflir vilja okkar og hjálpar okkur að lifa í samræmi
við hann. Hún hjálpar okkur að greina á milli þess hvenær það á við að
standa fast á skoðun okkar og hvenær að gefa eftir. Blandan veitir okkur
stuðning í leitinni að tilgangi lífsins og til að lifa hann til fulls.
Gott að taka inn þegar þú skorast undan að bera ábyrgð á þér eða lífinu
þínu, þarft að fá viðurkenningu frá öðrum eða hefur þörf fyrir að
stjórna öðrum. Viljablandan er góð við fullkomnunaráráttu og ofurstolti.
Kemur á jafnvægi í sólarplexus.
Inniheldur ölkelduvatn og tíðni eftirtalinna plantna:
Brenninetlu (Urtica dioeca), Burnirótar (Rhodiola rosea), Ljónslappa (Alchemilla
alpina) og Sólberjarunna (Ribes nigrum).
Gleði og hlátur
Gleðiblandan veitir gleði og hlátri inn í hjarta okkar; veitir frið
og sætti; eflir sjálfsást; og auðveldar okkur að þiggja gjafir annarra
og lífsins sjálfs. Gott að taka inn þegar þú upplifir sorg,
sektarkennd, höfnun og tilfinningalegan sársauka. Er góð við áföllum,
hjartasárum og þegar þér finnst þú ekki vera "nóg/ur". Kemur á jafnvægi
í hjartastöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Álms (Ulmus glabra), Evrópulerkis (Larix europaea), Hrafnaklukku (Cardamine
nymanii), Skógarfuru (Pinus sylvestris) og lífrænt ræktaðrar Hjólkrónu (Borago
officinalis).
Alheimskærleikur
Veitir aukið traust; opnar hjartað fyrir gegnumstreymi kærleikans;
hjálpar okkur að fyrirgefa okkur sjálfum og öðrum, að finna að allir
hlutir hafa sinn tilgang þótt við sjáum hann ekki alltaf sjálf; kemur á
jafnvægi milli hins innra og hins ytra; og gerir okkur betur kleift að
upplifa kærleika til alls sem er. Gott að taka inn við djúpstæðum
sársauka sem tengist einstaklingum og hópum, t.d. niðurlægingu, vonleysi
og svartnætti tilfinninganna. Kemur á jafnvægi í hjartastöð II.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Blóðbergs (Thymus praecox spp. arcticus), Gulmöðru (Galium verum),
Maríustakks (Alchemilla vulgaris) og Undafífils (Hieracium spp).
Helg tjáning
Hjálpar okkur að tjá óhindrað hið sanna sjálf; veitir styrk til að
vera fullkomlega heiðarleg/ur og einlæg/ur í allri framgöngu bæði við
mann sjálfan og aðra; hjálparokkur að mynda rými til að tjá óhindrað og
á nýjan hátt hver við erum, í samræmi við vilja og tilgang sálarinnar.
Gott að taka inn þegar við eigum erfitt með að segja sannleikann.
Tjáningarblandan er góð við þunglyndi einmannakennd, feimni og
einangrunartilfinningu. Kemur á jafnvægi í hálsstöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Ljósbera (Lychnis alpina), Sigurskúfs (Epilobium angustifolium),
Tófugrass (Cystopteris fragilis), og Vetrarblóms (Saxifraga
oppositifolia).
Innsæi
Veitir traust og öryggi; tengir okkur við sálina og eflir innblástur frá
henni; innsæi eykst og
sömuleiðis traust á innri visku; hjálpar okku að sjá hvað býr að baki
hlutunum og innri tilgang lífsins. Gott að taka inn við svefnleysi, ótta,
kvíða og skelfingu. Er góð fyrir þá sem sjá hlutina annaðhvort svarta
eða hvíta eða rata ekki út úr blekkingarheimi hugans. Kemur á jafnvægi í
ennisstöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Bláklukku (Campanula rotundifolia), Blæaspar (Populus tremula),
Ilmbjarkar (Betula pubes cens), Mýrasóleyjar (Parnassia palustris) og
lífrænt ræktaðs Klæðisblóms (Tagetes patula).
Skilningur
Þessi blanda veitir hugarró og orku inn í taugakerfið; dýpkar
vitundina, skilningur eflist og sömuleiðis frelsi frá þeim hugmyndum,
hugformum og kenningum sem hindra okkur í þroska og vexti. Hugurinn
verður opinn og frjáls. Gott að taka inn við taugaveiklun, skorti á
einbeitingu og ofurviðkvæmni fyrir umhverfinu. Slökunar- og
Skilningsblómadropablöndurnar teknar saman hafa reynst vel fyrir þá sem
greinst hafa ofvirkir. Kemur á jafnvægi í hvirfilstöðinni.
Inniheldur tíðni eftirtalinna plantna:
Gleym-mér-ei (Myosotis arvensis), Klóelftingar (Equisetum arvense),
Loðvíðis (Salix lanata) og Tágamuru (Potentilla anserina).
Lífsbjörgin (Life Power) er frábær áfallahjálp og gott að hafa
með sér, hvert sem farið er. Ef ójafnvægi kemst á tilfinningar eða huga
er gott að setja 3 dropa undir tungu á 15 mín. fresti eða þar til
jafnvægi hefur verið náð aftur. Einnig er hægt að setja 3 dropa í
vatnsglas og smá súpa á því.
Auk þess er gott að nota Lífsbjörgina beint á líkamann ef til slysa
kemur og skal þá nudda þá dropunum á slasaða svæðið.
|