Vitund II
Í Vitund II er verið að vinna með tilfinningar, huga,
orkulíkama og sálina. Náttúrudropunum er blandað saman með það að
leiðarljósi að opna persónuna, hina daglegu vitund, upp fyrir sálinni
svo sálarljósið lýsi enn betur í gegnum okkur. Náttúrdroparnir í Vitund
II hjálpa okkur að rækta sálareiginleika og hæfileika okkar, birta þá í
daglegu lífi og nýta þá til blessunar fyrir okkur sjálf og samfélagið.
Þeir styðja okkur í að losa hindranir milli sálar og persónu, þannig að
fegurð sálarinnar fái að njóta sín í lífi okkar. Þegar það gerist hækkar
tíðni okkar verulega og vitund okkar stækkar, við verðum meira meðvituð,
vitrari og sjáum enn betur samhengi hlutanna.
Í Vitund II eru 9 náttúrudropa-blöndur: Ákveðni, Sætti, Sjálfsagi,
Helgur kærleikur, Innri friður, Æðri máttur, Einbeitni, Þakklæti og
Frelsi.
Með hverri flösku fylgir staðhæfing til að minna okkur á þá
eiginleika sem við erum að efla og með því að fara með staðhæfinguna
þegar við tökum inn dropana þá styrkjum við enn frekar þessa eiginleika
með okkur.
Ákveðni
Þessi blanda styrkir rætur okkar og dregur fram þann innri styrk og
öryggi sem við þörfnumst til að vera trú okkar eigin tilgangi, vilja,
sannfæringu og sannleika. Þessi blanda hjálpar okkur að jarðtengja
sálarkjarnann alveg ofan í líkamann. Góð þegar við erum áttavillt, og
eigum erfitt með að standa með okkur sjálfum. Eflir rótarstöð og dul
lyktarskyn.
Sætti
Hjálpar okkur að sættast við lífið eins og það er núna og sætta okkur
við það sem við getum ekki breytt. Hún hjálpar okkur að sættast við
okkur sjálf og aðra og við förum að sjá hversu frábærir aðrir og við
sjálf erum. Með sættinu vaknar sköpunar-krafturinn og sálin nær að tjá
sig í gegnum tilfinningar okkar. Listsköpunareiginleikar okkar eflast.
Góð þegar við erum föst í stífni og reiði. Góð þegar við eigum erfitt
með að fyrirgefa og sleppa takinu af fortíðinni. Eflir magastöð og dul
bragðskyn.
Sjálfsagi
Þessi blanda gefur aga og styrkir okkur í að framkvæma vilja sálarinnar.
Gefur okkur drifkraft til að lifa tilganginn okkar og framkvæma okkar
hluta af áætlun sálar og Guðs fyrir okkur á jörðinni. Góð þegar við
vitum hvað við eigum að gera og viljum gera en vantar styrk og leyfum
vana og óreiðu að taka yfir. Við hættum að láta reika á reiðanum. Eflir
sólarplexus og skyggni.
Helgur kærleikur
Hjálpar okkur að elska skilyrðis-laust. Elska án kröfu um endurgjald og
án allra væntinga. Hjartað opnar sig fyrir lýsandi sálinni. Kærleikurinn
baðar okkur í ljósi sínu og alla aðra í kringum okkur.
Heilunarhæfileikar okkar aukast til muna. Góð þegar við erum eigingjörn,
kröfuhörð og tilætlunarsöm. Eflir hjartastöð og dul tilfinningaskyn.
Innri friður
Gefur frið og jafnvægi í tjáningu okkar. Hjálpar okkur að tjá okkur frá
sálarkjarnanum. Orð og athafnir verða friðsöm og endalausir möguleikar
tjáningar opnast okkur. Við náum að skapa í flæði með sálinni og í sátt
við framvindu lífsins.
Góð við einmanakennd. Hjálpar okkur að koma út úr einangrun og sýna hver
við raunverulega erum. Eflir hálsstöð og dul heyrn.
Æðri máttur
Hjálpar okkur að gefast Guði og treysta ætlun Guðs. Þessi blanda hjálpa
okkur að tengjast enn betur Guði eins og hver og einn skilur eða
skilgreinir þá endalausu uppsprettu kærleika sem Guð er. Við förum að
skapa lífið með okkar æðri mætti. Góð þegar við treystum ekki og höfum
misst trúna á framvindu lífsins og æðri mátt. Eflir augabrúnastöð og
hæfileikann til að skynja Guðs vilja.
Einbeitni
Eflir fókus, einbeitingarhæfileika og skerpir athygli. Hjálpar okkur að
muna leiðina okkar, sjá hver leiðin er og lifa hana. Einbeitni blandan
hjálpar okkur að sjá skýrt fyrir okkur þá leið sem æðri máttur leiðir
okkur og skilja enn betur samhengi hlutanna. Sálarkjarninn jarðtengir
sig í huga okkar og sest í sæti sitt í ennisstöðinni. Góð þegar hugurinn
getur ekki stoppað og einbeitingin er út og suður, þegar við erum
áttavillt og ringulreið ríkir í huganum. Þessi blanda eflir tengingu við
alheimssálina.
Þakklæti
Gefur þakklæti fyrir allt sem lífið hefur gefið okkur. Bæði sigra og
ósigra. Við förum að þakka fyrir mótstreymið eins og velgengnina því það
styrkir okkur og dregur fram í okkur meiri dýpt og visku. Blandan
styrkir dyggðirnar okkar, hjálpar okkur að virkja þær og nota í daglegu
lífi. Aðstoðar við að skapa jafnvægi milli vitsmuna, tilfinninga og
athafna. Góð þegar hugur og hjarta eru ekki sammála og þegar við getum
ekki sleppt takinu af útkomunni. Eflir dyggðastöð.
Frelsi
Gefur tilfinningu fyrir að vera fullkomlega frjáls og óháð þrátt fyrir
allar þær takmarkanir sem hið jarðneska líf virðist setja okkur. Við
förum að sjá lífið, okkur sjálf og aðra með takmarkalausu umburðarlyndi,
skilningi, kærleika og visku. Fullkomið traust á framvindu lífsins fer
að ríkja í vitund okkar. Við sjáum fegurð, samræmi og blessun í öllu.
Góð þegar hugurinn er fastur í gömlu mynstri, þröngsýni og ótta. Eflir
höfuðstöð og tengingu við alheimsvitundina, alsæluna.
_____
Notkun
Þú hristir flöskuna, sem þú hefur valið, og lætur 3 dropa falla undir
tunguna, 4-8 sinnum á dag eða þar til þér líður betur. Þú getur notað
2-3 blómadropaflöskur í einu. (Gættu þess að láta dropa-teljarann ekki
komast í snertingu við munninn.) Þessi aðferð hefur áhrif á
yfirborðstilfinningar dagsins. Einnig er gott að setja blómadropa út í
vatnsglas, te, vatnsbrúsa eða baðvatn, svo eitthvað sé nefnt.
Ekki er nein hætta á að droparnir veki upp áfengisfíkn hjá óvirkum
alkahólistum en þó er gott fyrir þá, sem hafa nýlega komið úr
áfengismeðferð, að hafa vaðið fyrir neðan sig og taka þá inn
með vatni. Blómadroparnir veita góða hjálp öllum þeim sem eru í
einhverskonar meðferð, sama hvaða nafni hún nefnist.
Djúpvinna
Til að vinna á djúpstæðum tilfinningum færð þú þér 30ml flösku með
dropateljara, telur 21 dropa í hana úr blómadropa-flöskunni, sem þú
hefur valið þér, og fyllir upp með vatni. Hristu vel. Því næst tekur þú
inn 7 dropa í örlitlu af vatni þrisvar á dag uns 30ml flaskan er kláruð.
Markviss djúpvinna
Einnig er hægt að vinna markvisst með Vitundar II kerfið. Þá er byrjað á
Ákveðni flöskunni (virkar á neðstu orkustöðina), blandað úr henni í 30ml
flösku og blandan tekin inn á sama hátt og greint er frá í djúpvinnunni.
Því næst er hver flaskan á fætur annarri notuð þar til þú hefur klárað
allar. Þannig hreinsar þú burt gamla staðnaða orkur frá þér og myndar
jafnvægi í heildarverund þinni. Orkuflæðið verður jafnt og þétt í öllum
orkustöðvum og orkukerfum, og ný orka með nýjum tækifærum kemst að þér.
|