Jógakennaranámskeið

Fyrri hluti hefst 5. – 20. ágúst 2010 í Bláfjöllum.

 

 

Jógatímar haust 2010

hefst mánudaginn 14. september.

Tími Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud.
17.15 -18.30 Framhalds Jóga GB   Framhald Jóga GB  
 

 

Umbreyting og Orka

Helgarnámskeið í nóvember 2010 í Bláfjöllum.

Á þessu námskeiði notum við m.a. jóga, dans, blómadropa, hugleiðslur, djúpslökun og leik til að hjálpa okkur að stíga út úr gamalli orku, losa okkur við gamlar tilfinningar og hugsanamynstur og stíga inn í sköpunarkraftinn okkar, opna okkur upp fyrir okkar æðri vitund og gefa okkur sjálfum frelsi til að vera sú/sá sem við raunverulega erum.

Skráning hafin.

 

Blómadropaþerapistanám

Vor 2011

Nám fyrir alla þá sem vilja læra um íslenska blómadropa, hvernig hægt er að nota þá fyrir sjálfan sig, fólkið sitt og skjólstæðinga sína. Það er fyrir þá sem vilja vinna með sjálfa sig og aðra sem blómadropaþerapisti með blómadropum einum sér eða samhliða annarskonar meðferðarformum.

Nmámið hefst helgina 16.-18. apríl. að Elliðavatni.

Helgina 14.-16. maí veður kennt í bláfjöllum.

kennt verður mánu- og fimmtudagskvöld frá um 18:00 til 21:00

 Meðal námsefnis:

    Eiginleikar og áhrif 44 íslenskra blómadropa

    Hvað eru blómadropar

    Hvernig þeir vinna

    Hvernig gott er að nota þá

    Ýmsar aðferðir við val á blómadropum

    Orkulíkama anatómía

    Hugar og tilfinninga anatómía

    Hvernig tengjast blómadroparnir orkukerfi mannsins

    Sjálfsvinna með blómadropum

    Vinna með skjólstæðinga

    Sjálfsuppbygging og sjálfsstyrking á ýmsan máta

    Hugleiðslutækni Heilarans

   Allir fá blómadropasett með 44 íslenskum blómadropum til að vinna með.

Nemendur útskrifast með diploma sem blómadropaþerapistar frá  Blómadropaskóla Kristbjargar – skóla ljóss og friðar.

Námið hefst með helgar námskeiði, því næst taka við blómadropakvöld einu sinni í viku í 3 mánuði. Á miðju tímabili er farin löng helgi í Bláfjöll þar sem við gistum á staðnum.

Fyrir utanbæjarnema þá er mætingarskylda á helgarnar í bænum og Bláfjöllum en blómadropakvöldin eru tekin utanskóla í heimanámi.

Næsta námskeið hefst helgina:

15. – 17. maí í Reykjavík. Fastir tímar á þriðjudagskvöldum frá 19.00 – 22.00. út júni.  Helgin 18. – 21. júní í Bláfjöllum.

Nám hefst svo aftur 8. September og klárast í lok September.

Heimavinna:

Neminn þarf að:

    vera með minnst 7 sjólstæðinga í blómadropa meðferð og skila

    skýrslum  þar að lútandi.

    Skrá niður eigin upplifanir af inntöku blómadropanna

    Regluleg ástundun Hugleiðslutækni Heilaranns

    Taka inn og nota dropana meðan námið stendur yfir

    Gera stuttar ritgerðir um ákveðin efni hverju sinni

    Ýmis sjálfsskoðunar verkefni og fleira.

Þetta er skemmtilegt nám, afar gefandi fyrir alla. Heilunarkraptur jurtanna kemur öllum skemmtilega á óvart og margir tengjast náttúrunni á nýjan hátt. Námið dýpkar skilning á sjálfum sér og hvernig við höfum áhrif á lífið með hugsunum, tilfinningum og athöfnum okkar.

 Álfheiður segir:

Ég fór á þetta námskeið án þess að hafa notað blómadropa, hafði frétt af þessu og fannst þetta mjög áhugavert og vildi nota þá með öðru sem ég var að gera. Þetta er himnasendig fyrir mig. Í fyrsta lagi er Kristbjörg frábær kennari, er með á hreinu það sem hún er að kenna og blómadroparnir gera ótrúlegustu hluti fyrir mig og flesta sem ég hef miðlað blómadropunum, þó ég sé ekki lengra komin en rúmlega hálft námskeið. Ég upplifi mjög mikið á námskeiðinu, fer inn á við, vinn í sjálfri mér, hlusta á minn innri mann (sál) og sleppi aðeins fram af mér beislininu. Er frjálsari en áður. Ástar þakkir fyrir mig.

 

Vorhreingerning vor 2010

Nú stendur til að hefja vorhreingerningu í líkamanum með breyttu mataræði og jafnvel föstu fyrir þá sem eru tilbúnir að fara svo langt undir minni leiðsögn. Föstu námskeið verður að Elliðavatni í vinnustofunni minni og er í allavega 3 vikur á væntanlega mánudögum og miðvikudögum og laugardögum þegar við á. Hugsanlega eru fleiri sem vilja vera lengur á föstunni og þá vil ég gjarnan fá að fylgjast með.

Ég mun fjalla um hvernig hægt er að hreinsa líkamann með því að borða ákveðin mat og án þess að fasta allveg frá mat, hvað er nauðsynlegt að hafa í huga á öllum stigum föstunnar og hvernig við komum út úr föstunni aftur. Þeir sem vilja fara lengra og prufa að fasta á söfum hafa minn stuðning á meðan líka. Við byjurm á undirbúningi fyrir föstuna, að fasta er í raun listgrein þar sem við þurfum að hlutsta á þörf líkamans allan tíman og láta hann ráða, ekki hugann okkar eða kappsemina. Við erum að fara að hreinsa likamann ekki grenna hann. Það þýðir að við undirbúum okkur vel og förum hægt inn í hana.

Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið og fyrir þá sem ekki komast á laugardaginn en vilja vera með þá er nauðsynlegt að hittast á mánudaginn næsta kl 19.45. Þið sem viljið koma í huleiðsluna sem er á undan eða kl 18.45 – 19.45 eruð hjartanlega velkomin.

Námskeiðið kostar 12.000kr. Innifalið eru námskeiðsgögn og blómadropar.

 

Jurtaveisla í Heiðmörk

Árleg jurtaveisla Hildar Hákonardóttur og Kristbjargar er 19 - 20 júni. Kristbjörg kennir á laugardag 10 - 16 um meðferð lækningajurta, söfnun, tínslu, blöndun og fl. Hildur kennir á sunnudag kl 10 - 15 um nýtingu villtra jurta í matargerð.

Mæting við Elliðavatnsbæinn hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur kl 10. Hafið meðferðis skriffæri og stílabók, koddaver, lítil skæri og nesti. Komið klædd eftir veðri þar sem við göngum úti í allavega 2 tíma.

 

 

 

Skilaboð dagsing í dag:

Hamingjan er hugarástand

Dagurinn í dag gefur frábært tækifæri til að lifa í núinu, til að vera hamingjusöm og sátt með lífið eins og það er núna. Raunveruleg hamingja kemur innan frá, hún kemur frá Guði og hefur ekkert að    gera með umhverfið okkar. Hættum að hengja líðan okkar á annað  fólk, kringumstæður, fjármálin okkar eða samfélagið sem við búum í. Við höfum val um að lifa í gleðinni og hamingjunni á hverjum degi.
Megir þú eiga frábæran dag í dag


Kristbjörg


Námskeið hjá Kristbjörgu

  • Jógakennaranámskeið 5. - 20. ágúst 2010 og 13. sept - 30 októ
  • ber 2010.
  • Jóga framhald: Gerðuberg kl 17.15 - 18.30. Hefst 13. sept 2010.
  • Blómadropaþerapistanám: hefst 11. - 13. mars endar 27. maí 2011 .
  •             Skráning hafin í síma 861 1373, fyrstir koma fyrstir fá.....

                                                                Aðstoðarkennari María Ýr Valsdóttir


    Helstu útsölustaðir á blómadropum og jóga-geisladiskum frá Kristbjörgu:

     

    Tenglar

     www.heilsuhondin.is

     www.natturna.is