|
|
Kristbjörg Elín Kristmundsdóttir
Kristbjörg hefur unnið með blómadropa í
hartnær 20 ár, byrjaði með Bach blómadropakerfið og fór strax að prófa sig áfram með
íslenskar jurtir í stað þeirra erlendu. Síðan þróaðist þessi vinna þannig að í
gegnum innsæið komu upplýsingarnar beint til hennar úti í náttúrunni og
sambandið við jurtirnar varð sterkara með hverju árinu sem leið. Í dag eru um
104 jurtir búnar að gefa sig fram við hana og hafa eiginleikar og verkan þeirra
þegar verið skrásett en ekki er þó búið að prófa allar tegundir endanlega.
Það var einkar henntugt að Kristbjörg bjó í Vallanesi þar sem hún stundaði
lífræna ræktun á samt manni sínum, því þar var hún að vinna með að hlusta á
náttúruna, skapa jafnvægi og læra að lifa í samræmi við náttúruöflin.
Árið 2000 lauk hún námi frá School of Natural Medecine í Iridologiu
(Lithimnufræði), Naturopath (heilbrigðisfræði), og Master Herbalist
(grasalækningum). Hefur hún unnið með jurtir síðan hún man eftir sér. Móðir
hennar kenndi henni að búa til blóðbergste þegar hún var telpu hnokki.
Kristbjörg er einnig jógakennari og hefur hún kennt jóga í
yfir 15 ár og hefur þá sérstaklega unnið með
samband líkama, tilfinninga, huga og sálar í gegnum jógað eins og blómadropa.
Hún lauk Kripalujóga kennaranámi frá Kripalu Center í bandaríkjunum, fór síðar í
framhaldsnám til Indlands 1994 og lagði þar ástund á Raja jóga og Astanga jóga.
Hún hefur sótt fjölmörg námskeið lengri og styttri víða í Bandaríkjunum og á Indlandi í
jógískum fræðum.
Árin 2000 - 2001 hlaut hún þjálfun á Indlandi hjá Dr. Paranjotyar Mahan (Gúrúji)
til að vígja fólk inn í Kundalini
hugleiðslu og hefur sú tækni opnað henni margar nýjar
leiðir á innri sviðunum. Þar er unnið með frumorkuna í okkur sjálfum á þeim
hraða sem hentar hverjum og einum. Kundaliniorkan er frumorka sem býr innra með
hverju mannsbarni og í gegnum hugleiðsluna byrtir hún sig sem kraftmikil
sköpunarorka. Þetta er leið til frelsis og hugljómunar.
Blómadropar vinna sérlega vel með henni þar sem bæði hugleiðslan og
blómadropavinnan styðja við framþróun mannkyns.
|
| |
|
|