Vorhreingerning 16. maí - 30. maí 2012

Listin að detoxa á auðveldan og léttan máta með gleði og krafti

Nú er rétti tíminn til að hefja vorhreingerningu í líkamanum með breyttu mataræði og jafnvel föstu fyrir þá sem eru tilbúnir að fara svo langt undir minni leiðsögn. Föstu námskeið hefst í Gerðubergi 16. maí, kl 19.00 - 21.00, og er í 3 vikur á miðvikudagskvöldum. Hugsanlega eru fleiri sem vilja vera lengur á föstunni og þá vil ég gjarnan fá að fylgjast með og aðstoða eftir þörfum.

Fjallað verður um ýmsar gerðir föstu án þess að fara á vatns föstu. Ég mun hjálpa þátttakendum að finna auðvelda og létta föstu sem henntar þeim sérstaklega, fjalla um þau atriði sem eru lífsnauðsynleg á föstunni og svo listina að brjóta föstuna aftur. Einnig fjalla ég um hvað gerist eftir föstuna, hvernig gott er að halda líkamanum hreinum og kraftmiklum á matnum sem við setjum í okkur.

Blómadroparnir verða að sjálfsögðu með í för allan tímann.

Ég mun fjalla um hvernig hægt er að hreinsa líkamann með því að borða ákveðin mat og án þess að fasta allveg frá mat, hvað er nauðsynlegt að hafa í huga á öllum stigum föstunnar og hvernig við komum út úr föstunni aftur. Þeir sem eru vanir og vilja fara lengra og prufa að fasta á söfum hafa minn stuðning á meðan líka. Við byjurm á undirbúningi fyrir föstuna, að fasta er í raun listgrein þar sem við þurfum að hlutsta á þörf líkamans allan tíman og láta hann ráða, ekki hugann okkar eða kappsemina. Við erum að fara að hreinsa likamann, losa okkur við vetrar úrgang, ekki grenna hann. Það þýðir að við undirbúum okkur vel og förum hægt inn og njótum ferðalagsins.

Skráning þegar hafin í síma 861 1373.
Námskeiðsgjald 28.000 kr með námsgögnum og blómadropum.


JÓGAKENNARANÁMSKEIÐ 230 tímar

Jóga og blómadropaskóli Kristbjargar – skóli ljóss og friðar

Hefst 2. ágútst - 13. ágúst 2012 í Bláfjöllum - útskrift í nóvember 2012.
 

Námið er tvíþætt:

A)   Ellefu daga grunn námskeið í Bláfjöllum

B)   Kennsluþjálfun og áframhaldandi nám fram í nóvember


Jóga Yama

 
Hefst næsta haust
m
ánudagar kl 19.00 - 21.00 í Gerðubergi
 

Yama er undirstaða allrar jógaástundunar, er grunnurinn sem allt jóga byggir á. Yama hjálpar okkur að efla og styrkja undirstöðurnar í lífi okkar. Við ástundun yama öðlumst við frelsi frá valdi huga og tilfinninga yfir lífi okkar og vitund.
Við leysum úr læðingi prönuna-lífsorkuna og sönnu gleðina sem liggja faldar hið innra í hindrandi tilfinningahnútum, steitu, kvíða og heftandi hugarferlum. Við eigum auðveldara með að lifa í núinu og verðum sjálf meira meðvituð sem skaparinn í okkar eigin lífi, förum að sjá samhengi hugsana, tifinninga, athafna og þess sem lífið færir okkur. Við öðlumst frelsi frá ótta, kvíða og vanlíðan allskonar og nálgumst það að lifa í einingarvitund. Kærleikurinn verður sterkari í okkar eigin lífi og um leið þeirra sem lifa með okkur hér á þessari guðdómlegu jörð.

Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestrar, öndunaræfingar, hugleiðsla, umræður, heimaverkefni og ástundun. Við munum m.a. tengja Yömurnar við 12 sporakerfið og heimssýn Dantes.

Farið verðu í: Orkustöðvar, Ahimsa, Satya, Astya, Brahmacharya, Aparigraha, Pratyahara, Dharana, Pranayama, samskiptamynstur í sjúku samfélagi og hvernig við getum stigið út úr þvi.

Námskeið fyrir alla þá sem vilja fara dýpra í jóganu sínu, lifa í kærleiksríkri einingarvitund og öðlast andlegt frelsi.

Hlakka til að sjá ykkur

 

Blómadropaþerapistanám

24. febrúar 2012 - útskrift í byrjun júní 2012

Nám fyrir alla þá sem vilja læra um íslenska blómadropa, hvernig hægt er að nota þá fyrir sjálfan sig, fólkið sitt og skjólstæðinga sína. Það er fyrir þá sem vilja vinna með sjálfa sig og aðra sem blómadropaþerapisti með blómadropum einum sér eða samhliða annarskonar meðferðarformum.

Nmámið hefst helgina 24 - 26 febrúar að Elliðavatni.

Helgina 27 - 29 apríl veður kennt í Bláfjöllum.

kennd verða þriðjudagskvöld frá 18:00 til 21:00

 Meðal námsefnis:

    Eiginleikar og áhrif 44 íslenskra blómadropa

    Hvað eru blómadropar

    Hvernig þeir vinna

    Hvernig gott er að nota þá

    Ýmsar aðferðir við val á blómadropum

    Orkulíkama anatómía

    Hugar og tilfinninga anatómía

    Hvernig tengjast blómadroparnir orkukerfi mannsins

    Sjálfsvinna með blómadropum

    Vinna með skjólstæðinga

    Sjálfsuppbygging og sjálfsstyrking á ýmsan máta

    Hugleiðslutækni Heilarans

   Allir fá blómadropasett með 44 íslenskum blómadropum til að vinna með.

Nemendur útskrifast með diploma sem blómadropaþerapistar frá  Blómadropaskóla Kristbjargar – skóla ljóss og friðar.

Námið hefst með helgar námskeiði, því næst taka við blómadropakvöld einu sinni í viku í 3 mánuði. Á miðju tímabili er farin löng helgi í Bláfjöll þar sem við gistum á staðnum.

Fyrir utanbæjarnema þá er mætingarskylda á helgarnar í bænum og Bláfjöllum en blómadropakvöldin eru tekin utanskóla í heimanámi.

Næsta námskeið hefst helgina:

15. – 17. maí í Reykjavík. Fastir tímar á þriðjudagskvöldum frá 19.00 – 22.00. út júni.  Helgin 18. – 21. júní í Bláfjöllum.

Nám hefst svo aftur 8. September og klárast í lok September.

Heimavinna:

Neminn þarf að:

    vera með minnst 7 sjólstæðinga í blómadropa meðferð og skila

    skýrslum  þar að lútandi.

    Skrá niður eigin upplifanir af inntöku blómadropanna

    Regluleg ástundun Hugleiðslutækni Heilaranns

    Taka inn og nota dropana meðan námið stendur yfir

    Gera stuttar ritgerðir um ákveðin efni hverju sinni

    Ýmis sjálfsskoðunar verkefni og fleira.

Þetta er skemmtilegt nám, afar gefandi fyrir alla. Heilunarkraptur jurtanna kemur öllum skemmtilega á óvart og margir tengjast náttúrunni á nýjan hátt. Námið dýpkar skilning á sjálfum sér og hvernig við höfum áhrif á lífið með hugsunum, tilfinningum og athöfnum okkar.

 Álfheiður segir:

Ég fór á þetta námskeið án þess að hafa notað blómadropa, hafði frétt af þessu og fannst þetta mjög áhugavert og vildi nota þá með öðru sem ég var að gera. Þetta er himnasendig fyrir mig. Í fyrsta lagi er Kristbjörg frábær kennari, er með á hreinu það sem hún er að kenna og blómadroparnir gera ótrúlegustu hluti fyrir mig og flesta sem ég hef miðlað blómadropunum, þó ég sé ekki lengra komin en rúmlega hálft námskeið. Ég upplifi mjög mikið á námskeiðinu, fer inn á við, vinn í sjálfri mér, hlusta á minn innri mann (sál) og sleppi aðeins fram af mér beislininu. Er frjálsari en áður. Ástar þakkir fyrir mig.

 


 

Jurtaveisla í Heiðmörk

Árleg jurtaveisla Hildar Hákonardóttur og Kristbjargar er 9 - 10 júni. Kristbjörg kennir á laugardag 10 - 16 um meðferð lækningajurta, söfnun, tínslu, blöndun og fl. Hildur kennir á sunnudag kl 10 - 15 um nýtingu villtra jurta í matargerð.

Mæting við Elliðavatnsbæinn hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur kl 10. Hafið meðferðis skriffæri og stílabók, koddaver, lítil skæri og nesti. Komið klædd eftir veðri þar sem við göngum úti í allavega 2 tíma.

 

 

 

Skilaboð dagsing í dag:

Hamingjan er hugarástand

Dagurinn í dag gefur frábært tækifæri til að lifa í núinu, til að vera hamingjusöm og sátt með lífið eins og það er núna. Raunveruleg hamingja kemur innan frá, hún kemur frá Guði og hefur ekkert að    gera með umhverfið okkar. Hættum að hengja líðan okkar á annað  fólk, kringumstæður, fjármálin okkar eða samfélagið sem við búum í. Við höfum val um að lifa í gleðinni og hamingjunni á hverjum degi.
Megir þú eiga frábæran dag í dag


Kristbjörg


Námskeið hjá Kristbjörgu

  • Jógakennaranámskeið 2. - 13. ágúst samfellt í Bláfjöllum, útskrift í nóvember.
  • Jóga framhald: Gerðuberg kl 17.15 - 18.30. er hafið og verður fram á vor.
  • Blómadropaþerapistanám: hefst 24 - 26 febrúar - útskrift í júní 2012
  •             Skráning hafin í síma 861 1373, fyrstir koma fyrstir fá.....

                                                                Aðstoðarkennari María Ýr Valsdóttir


    Helstu útsölustaðir á blómadropum og jóga-geisladiskum frá Kristbjörgu:

     

    Tenglar

     www.heilsuhondin.is

     www.natturna.is