Nám fyrir alla þá sem vilja læra um
íslenska blómadropa, hvernig hægt er að
nota þá fyrir sjálfan sig, fólkið sitt
og skjólstæðinga sína. Það er fyrir þá
sem vilja vinna með sjálfa sig og aðra
sem blómadropaþerapisti með blómadropum
einum sér eða samhliða annarskonar
meðferðarformum.
Nmámið hefst
helgina
24 - 26 febrúar að Elliðavatni.
Helgina
27 - 29 apríl veður kennt í
Bláfjöllum.
kennd verða
þriðjudagskvöld
frá 18:00 til 21:00
Meðal námsefnis:
Eiginleikar og áhrif 44 íslenskra
blómadropa
Hvað eru blómadropar
Hvernig þeir vinna
Hvernig gott er að nota þá
Ýmsar aðferðir við val á blómadropum
Orkulíkama anatómía
Hugar og tilfinninga anatómía
Hvernig tengjast blómadroparnir
orkukerfi mannsins
Sjálfsvinna með blómadropum
Vinna með skjólstæðinga
Sjálfsuppbygging og sjálfsstyrking á
ýmsan máta
Hugleiðslutækni Heilarans
Allir fá blómadropasett með 44 íslenskum
blómadropum til að vinna með.
Nemendur útskrifast með diploma sem
blómadropaþerapistar frá
Blómadropaskóla Kristbjargar – skóla
ljóss og friðar.
Námið hefst með helgar námskeiði, því
næst taka við blómadropakvöld einu sinni
í viku í 3 mánuði. Á miðju tímabili er
farin löng helgi í Bláfjöll þar sem við
gistum á staðnum.
Fyrir utanbæjarnema þá er mætingarskylda
á helgarnar í bænum og Bláfjöllum en
blómadropakvöldin eru tekin utanskóla í
heimanámi.
Næsta námskeið hefst helgina:
15. – 17. maí
í Reykjavík. Fastir tímar á
þriðjudagskvöldum frá 19.00 – 22.00. út
júni. Helgin 18. – 21. júní í
Bláfjöllum.
Nám hefst svo aftur 8. September og
klárast í lok September.
Heimavinna:
Neminn þarf að:
vera með minnst 7 sjólstæðinga í
blómadropa meðferð og skila
skýrslum þar að lútandi.
Skrá niður eigin upplifanir af inntöku
blómadropanna
Regluleg ástundun Hugleiðslutækni
Heilaranns
Taka inn og nota dropana meðan námið
stendur yfir
Gera stuttar ritgerðir um ákveðin efni
hverju sinni
Ýmis sjálfsskoðunar verkefni og fleira.
Þetta er skemmtilegt nám, afar gefandi
fyrir alla. Heilunarkraptur jurtanna
kemur öllum skemmtilega á óvart og
margir tengjast náttúrunni á nýjan hátt.
Námið dýpkar skilning á sjálfum sér og
hvernig við höfum áhrif á lífið með
hugsunum, tilfinningum og athöfnum okkar.
Álfheiður
segir:
Ég fór á þetta námskeið án þess að hafa
notað blómadropa, hafði frétt af þessu
og fannst þetta mjög áhugavert og vildi
nota þá með öðru sem ég var að gera.
Þetta er himnasendig fyrir mig. Í fyrsta
lagi er Kristbjörg frábær kennari, er
með á hreinu það sem hún er að kenna og
blómadroparnir gera ótrúlegustu hluti
fyrir mig og flesta sem ég hef miðlað
blómadropunum, þó ég sé ekki lengra
komin en rúmlega hálft námskeið. Ég
upplifi mjög mikið á námskeiðinu, fer
inn á við, vinn í sjálfri mér, hlusta á
minn innri mann (sál) og sleppi aðeins
fram af mér beislininu. Er frjálsari en
áður. Ástar þakkir fyrir mig.