|
|
|
Jóga Yama
8. febrúar - 13. mars
mánudagar kl 19.00 - 21.00
í Gerðubergi
Yama er undirstaða allrar
jógaástundunar, er grunnurinn sem
allt jóga byggir á. Yama hjálpar
okkur að efla og styrkja
undirstöðurnar í lífi okkar. Við
ástundun yama öðlumst við frelsi frá
valdi huga og tilfinninga yfir lífi
okkar og vitund.
Við leysum úr læðingi
prönuna-lífsorkuna og sönnu gleðina
sem liggja faldar hið innra í
hindrandi tilfinningahnútum, steitu,
kvíða og heftandi hugarferlum. Við
eigum auðveldara með að lifa í núinu
og verðum sjálf meira meðvituð sem
skaparinn í okkar eigin lífi, förum
að sjá samhengi hugsana, tifinninga,
athafna og þess sem lífið færir
okkur. Við öðlumst frelsi frá ótta,
kvíða og vanlíðan allskonar og
nálgumst það að lifa í
einingarvitund. Kærleikurinn verður
sterkari í okkar eigin lífi og um
leið þeirra sem lifa með okkur hér á
þessari guðdómlegu jörð.
Kennslufyrirkomulag: Fyrirlestrar,
öndunaræfingar, hugleiðsla, umræður,
heimaverkefni og ástundun. Við munum
m.a. tengja Yömurnar við 12
sporakerfið og heimssýn Dantes.
Farið verðu í: Orkustöðvar, Ahimsa,
Satya, Astya, Brahmacharya,
Aparigraha, Pratyahara, Dharana,
Pranayama, samskiptamynstur í sjúku
samfélagi og hvernig við getum
stigið út úr þvi.
Námskeið fyrir alla þá sem vilja
fara dýpra í jóganu sínu, lifa í
kærleiksríkri einingarvitund og
öðlast andlegt frelsi.
Hlakka til að sjá ykkur
|
| |
|
|