JÓGAKENNARANÁMSKEIÐ 230 tímar
Jóga og blómadropaskóli
Kristbjargar – skóli ljóss og friðar
Hefst 2. ágútst - 13. ágúst 2012 í Bláfjöllum - útskrift í nóvember 2012.
Námið er tvíþætt:
A) Ellefu
daga grunn námskeið í Bláfjöllum
B)
Kennsluþjálfun
og áframhaldandi nám fram í nóvember
Námsefni hluta A: · grunnþætti Rajajóga · Grunnþættir Rajajóga, hins konunglega jóga· Hatha jóga (líkamsstöður, fara inn í þær, halda og koma út úr þeim) · áhrif af hverri jógastöðu fyrir sig
· Pranayama (öndunaræfingar)· Yamas
· Niyamas
·
Pratyahara (að
draga athyglina inn á við),
Dharana (að beina athyglinni)
·
Dhyana (hugleiðslu)
·
kennslufræði
·
Yoga Niddra, slökun
·
listina að setja saman jógastöður
og jógatíma
· Bakthi jóga og
Karma jóga
·
Heilunar
hugleiðsla
·
jóga sem sjálfsvinnutæki
·
líkamsfræði/anatomia
· heilsu, mataræði
og lifnaðrhætti
·
upphitunaræfingar
·
þjálfun í að elska sjálfan sig og
nemendurna til fulls.
Hluti
B samanstendur af
·
þjálfun í kennslu undir leiðsögn · kennslutækni
·
framhald í kennslufræðum
· Gnjana jóga
·
hópvinna
·
heimaverkefni
·
jógaástundun með
Kristbjörgu
Kristbjörg
Kristmundsdóttir er upphaflega menntaður Kripalu jógakennari
frá Kripalu Center, Massachusetts. Hún hefur einnig hlotið
fjölbreytta þjálfun á Indlandi m.a. í Jnanajóga, Karmajóga,
Bhaktíjóga, Asthangajóga, Hathajóga, Rajajóga, Contactjóga og
Kundalinihugleiðslu.
Einnig er hún menntaður lithimnufræðingur/iridologist,
jurtagræðari/master herbalist og heilbryggðisfræðingur/naturopath
frá School of Natural Medecine í Bolder, Colorado.
Hún starfaði sem lífrænn bóndi í 20 ár, byggði upp Vallanes á
Fljótsdalshéraði þar sem hún vann að eflingu lífrænnar ræktunar á
austurlandi.
Hún hefur kennt jóga
í yfir 20 ár, haldið þó
nokkur jógakennaranámskeið og ýmiskonar
umbreytandi helgarnámskeið með jóga, dansi,
hugleiðslum og blómadropum hér heima sem og
erlendis. Jógað sem hún kennir kemur úr grunni alls jóga, úr frum
fræðunum þ.s. engin persóna hefur skapað "sitt jóga" úr jóga grunninum.
Hún styðst við Yoga Sutrur Patanjalis sem gefur djúpa mynd af frum
fræðum jóga vísindanna. Sutrurnar er skráðar í þjöppuð kóðuðu máli sem
jóginn lærir að opna með eigin ástundun og í samræmi við þá dýpt og
skilning sem hann öðlast á vísindum lögmála lífsins. Jóga ástundun
hjálpar einstaklingnum m.a. að skilja lögmál náttúrunnar, hinnar ytri
náttúr sem og innri lögmálin og nálgast þau á vísindalegan hátt með
jógískri ástundun. Þannig skapar jóginn með sér samræmi og einingu við
lögmál lífsorkunnar hið innra. Pranan - lífsorkan eykst jafnt og þétt og
þannig opnast upp lyklarnir að leyndardómum vísinda anda og efnis.
Jógað sem hún kennir er ekki kennt við eitthvað einstakt af hinni miklu
jógísku leið, gæit heitið kærleiks jóga, prönu jóga, kundalini jóga (því
allt jóga leiðir að vöknun kúnalíni móður orkunnar og þess vegna gæti
allt jóga heitið kúndalini jóga), Lakulish jóga væri líka nafn á jógað
eða frum jóga. Hún kýs sjálf að kalla það bara Yoga því jóga þýðir
eining við sálina og það sem maður raunverulega er.
Hún framleiðir
íslenska blómadropa sem seldir eru á Íslandi, Bandaríkjunum
og víðar. Hún kennir blómadropaþerapíu sem er um 3 mánaða
nám. Þar læra nemendur um virkni blómadropanna, að
blanda dropa fyrir aðra miðað við ástand og þarfir hvers og
eins endar þetta nám
með viðurkenningarskjali frá Blómadropaskóla
Kristbjargar, skóla ljóss og friðar. Hún þjálfar
blómadropa-þerapistana síðan áfram á framhaldsnámskeiðum.
Nánari upplýsingar
hjá Kristbjörgu á
kristbjorg@kristbjorg.is eða í síma 861 1373.
Markmiðið með náminu í Bláfjöllum er að skapa aðstæður
fyrir verðandi jógakennara þar sem þeir ná að verða að jóga
(eining), lifa það og nota það til
umbreytingar á gömlum hindrunum í líkama, tilfinningum og
huga. Læra að kenna jóga á þann hátt að það hafi umbreytanid
áhrif á nemendur okkar, líkamlega, tilfinningalega og
hugrænt. Mikilvægt er að verðandi jógakennarar fái eins
ítarlega þjálfun og hægt er til að halda utan um nemendur
sína á því ferli umbreytingar sem jóga ástundun er. Þetta
nám er ekki aðeins líkamleg nálgun á jógafræðin. Jóga vinnur
með alla eðlisþætti okkar, það er inn á við ferli sem skapar
okkur tækifæri til að stíga út úr huganum og inn í hjartað
okkar. Viskan býr hið innra, allt sem við þörfnumst kemur
innanfrá. Jóga sem leiðir nemandann ekki inn á við er ekki
jóga, heldur aðeins leikfimi.
Lögð er mikil áhersla á sjálfsvinnu í náminu í gegnum hugleiðslu
og jógaástundun.
Námið er rúmlega 230 tímar og miðast við kröfur Yoga
Alliance um 200 tíma kennslu fyrir jógakennara réttindi að
viðbættum tímum í tilfinningavinnu og sjálfsvinnu sem ég tel
mjög mikilvægt að jógakennari hafi farið í gegnum áður en
hann fer að vinna með aðra.
Þetta nám er afar skemmtilegt og hefur mikið að gefa
nemendunum. Þeir sem fara í gegnum þetta nám eru alsælir,
þeir ljóma eins og sólin eftir Bláfjalla veruna og allir
dást að fegurðinni sem kemur innanfrá hverjum einstaklingi.
Hægt er að vera með í Bláfjalla partinum til að njóta
fyrrihluta námsins, eða rifja upp jógafræðin. Allir sem vilja gefa sér stórkostlega
gjöf, líkamlega og andlega munu njóta þess í botn að vera
með okkur. Skylda er þó að taka þátt í öllu sem
kennaranemarnir fara í gegnum þennan tíma.
Staðfestingargjald er greitt fyrir 15. júni eða við
skráningu. Eftir það er það óafturkræft.
Megi ljósið lýsa leiðina þína.
|