|
|
| Vorhreingerning 16. - 30. maí 2012
Listin að detoxa á auðveldan og léttan máta
með gleði og krafti
Nú er rétti tíminn til að hefja vorhreingerningu
í líkamanum með breyttu mataræði og
jafnvel föstu fyrir þá sem eru tilbúnir
að fara svo langt undir minni leiðsögn.
Föstu námskeið hefst í Gerðubergi 16. maí, kl 19.00 - 21.00, og
er
í 3 vikur á miðvikudagskvöldum. Hugsanlega eru
fleiri sem vilja vera lengur á föstunni
og þá vil ég gjarnan fá að fylgjast með og aðstoða eftir þörfum.
Fjallað
verður um ýmsar gerðir föstu án þess að fara á vatns föstu. Ég mun
hjálpa þátttakendum að finna auðvelda og létta föstu sem henntar þeim
sérstaklega, fjalla um þau atriði sem eru lífsnauðsynleg á föstunni og
svo listina að brjóta föstuna aftur. Einnig fjalla ég um hvað gerist
eftir föstuna, hvernig gott er að halda líkamanum hreinum og kraftmiklum
á matnum sem við setjum í okkur.
Blómadroparnir verða að sjálfsögðu með í för allan tímann.
Ég mun fjalla um hvernig hægt er að
hreinsa líkamann með því að borða
ákveðin mat og án þess að fasta allveg
frá mat, hvað er nauðsynlegt að hafa í
huga á öllum stigum föstunnar og hvernig
við komum út úr föstunni aftur. Þeir sem
eru vanir og vilja fara lengra og prufa að fasta á
söfum hafa minn stuðning á meðan líka.
Við byjurm á undirbúningi fyrir föstuna,
að fasta er í raun listgrein þar sem við
þurfum að hlutsta á þörf líkamans allan
tíman og láta hann ráða, ekki hugann
okkar eða kappsemina. Við erum að fara
að hreinsa likamann, losa okkur við vetrar úrgang, ekki grenna hann.
Það þýðir að við undirbúum okkur vel og
förum hægt inn og njótum ferðalagsins.
Skráning þegar hafin í síma 861 1373.
Námskeiðsgjald 28.000 kr með námsgögnum og blómadropum.
|
| |
|
|